Sunnudaginn 23. mars hefja Pörupiltar í samstarfi við Borgarleikhúsið almennar kvöldsýningar á Kynfræðslu Pörupilta á Litla sviði Borgarleikhússins. Pörupiltar eru mættir aftur til leiks eftir velgengni Homo Erectus sem sýnt var í Þjóðleikhúskjallaranum í tvo vetur og fór sú sýning út fyrir landsteinana. Nú eru þeir strákarnir komnir í kynlífið og ætla að fræða unglinga og fullorðna. Öllum 10. bekkingum í Reykjavík var boðið á sýninguna í febrúar og voru viðtökurnar vonum framar.
Sagan
Strákarnir Dóri Maack, Nonni Bö & Hermann Gunnarsson hafa lengi verið á atvinnuleysisbótum en þeir kynntust á sjálfstyrkingarnámskeiði hjá Vinnumálastofnun. Núna eiga þeir á hættu að missa bæturnar nema þeir taki ekki þátt í samfélagslegu verkefni. Eftir stutta yfirlegu ákváðu þeir að tækla kynfræðslu enda hafa þeir reynslu á því sviði, mismikla þó. Þeir hafa miklar væntingar og eru vel undirbúnir en einhverra hluta vegna endar alltaf allt í rugli hjá þeim. Verkefnið er styrkt af Hlaðvarpanum, Samfélagssjóði Landsbankans og Sprotasjóði.
Pörupiltar
Leikhópurinn Pörupiltar samanstendur af leikkonunum Sólveigu Guðmundsdóttur, Maríu Pálsdóttur og Alexíu Björgu Jóhannesdóttur. Þær hafa síðastliðin 8 ár komið fram undir nafni Pörupilta. Síðasta uppistand þeirra Homo Erectus gekk í tvo vetur í Þjóðleikhúskjallaranum við frábærar undirtektir og ferðaðist á leiklistarhátíðir erlendis. Pörupiltar settu upp verkið Beðið eftir Godot í Borgarleikhúsinu árið 2012.
Aðstandendur: Höfundur & Leikstjóri: Leikhópurinn | Leikmynd: Leikhópurinn og Hlynur Páll Pálsson| Búningar: Leikhópurinn og Ólöf Haraldsdóttir| Lýsing: Þórður Orri Pétursson | Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen | Leikarar: Alexía Björg Jóhannesdóttir, María Pálsdóttir & Sólveig Guðmundsdóttir
Nánari upplýsingar: Alexía Björg Jóhannesdóttir, alexia@borgarleikhus.is, s:869 6118, Sólveig Guðmundsdóttir, sgudmundsdottir@hotmail.com , s: 661 1492, María Pálsdóttir, majapals@hotmail.com, s: 863 6428