Netfang: petur@draumaleikhusid.is
Símanúmer: 6911219

Ferilsskrá:
Leikstjóri, höfundur og framleiðandi með víðtæka reynslu af uppsetningum fyrir ungmenni og áhugaleikfélög. Sérhæfi mig í söngleikjum og stærri uppfærslum þar sem taktur, flæði og heildarsýn skipta máli – og þar sem markmiðið er bæði listrænn árangur og góð aðsókn.
Ég legg ríka áherslu á mannleg samskipti, traust og jákvæða vinnumenningu. Náið samstarf við leikara – unga sem aldna – er grunnurinn að minni vinnu og ég leitast við að skapa metnaðarfullt en öruggt æfingaumhverfi þar sem hver og einn fær að blómstra.
Reynsla mín sem höfundur og framleiðandi styrkir heildarsýn mína á verkefnin, allt frá fyrstu hugmynd að frumsýningu. Ég hef unnið markvisst að leiklistarkennslu og þjálfun og lagt sérstaka áherslu á öruggt og faglegt vinnuferli í æfingum. Í því samhengi sæki ég sérhæfða þjálfun í nándarvinnu fyrir leikara við NFTS í Bretlandi.
Menntun mín er diplóma í viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum, nám við Rose Bruford College of Theatre and Performance og sérhæfð leikstjórnarnámskeið og masterclass.
Starfa aðallega á Norðurlandi en skoða verkefni um land allt eftir samkomulagi.
Hafið endilega samband fyrir nánari upplýsingar um mig til að skoða hvort ég henti í verkefnið.

Sjá ítarlegri ferilsskrá á PDF