Í dag, fimmtudaginn 18. janúar, verður opinn samlestur á söngleiknum Rocky Horror á Stóra sviði Borgarleikhússins og munu leikarar lesa verkið ásamt því að syngja lögin við píanóundirleik. Samlesturinn hefst kl. 13 og eru gestir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Sýningin verður frumsýnd föstudaginn 16. mars.

Eins og áður hefur komið fram þá fer Páll Óskar Hjálmtýsson með hlutverk Frank N Furter, en aðrir leikarar eru Arnar Dan Kristjánsson, Björn Stefánsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Valur Freyr Einarsson og Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Þá fer söngvarinn Valdimar Guðmundsson með hlutverk Eddie í sýningunni. Leikstjóri verksins er Marta Nordal, danshöfundur er Lee Proud og tónlistarstjóri er Jón Ólafsson.

Tveimur vikum síðar, fimmtudaginn 1. febrúar, verður sérstakur forsöludagur þar sem fólk gefst tækifæri til að tryggja sér miða áður en almenn sala hefst.

Rocky Horror fjallar um kærustuparið, Brad og Janet, sem leita ásjár í gömlum kastala úti á landi í aftakaveðri eftir að springur á bílnum hjá þeim. Þar hitta þau fyrir klæðskiptinginn og vísindamanninn Frank-N-Furter og allt hans teymi sem inniheldur afar skrautlegar persónur, m.a. nýjasta sköpunarverk klæðskiptingsins, vöðvatröllið Rocky. Unga parið glatar sakleysi sínu smám saman í þessum líflega félagsskap og lendir í ýmsum ævintýrum í kastalanum. Hárbeittur og eldfjörugur söngleikur með frábærri rokktónlist sem fjallar um mikilvægi þess að fá að vera sá sem maður er með öllum sínum sérkennum og sérstöðu.

Rocky Horror er löngu orðinn klassískur söngleikur sem sýndur hefur verið víða um heim. Hann var frumsýndur í Royal Court leikhúsinu í London árið 1973 en hefur gengið í nýrri uppfærslu í London sl. ár við frábærar viðtökur. Upp úr söngleiknum var gerð bíómyndin Rocky Horror Picture Show árið 1975 sem á sér stóran aðdáendahóp.

Söngleikurinn Rocky Horror á brýnt erindi um þessar mundir þegar valdamesta fólk heims ýtir undir og elur á ótta og hatri í garð jaðarhópa.

Endurmenntun HÍ er með námskeið í tengslum við leiksýninguna.
Snemmskráningarfrestur á námskeiðið er til og með 29. janúar 2018. Í námskeiðsgjaldi er innifalinn miði á forsýningu, 15. mars 2018. Sjá nánari upplýsingar hér.