Miðvikudaginn 27. maí kl 10:05 verður opinn samlestur í forsal Borgarleikhússins á verkinu At eftir Mike Bartlett.  Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- og búningahöfundar hugmyndir sínar og fyrir vikið er fyrsti samlestur oft eins konar hátíðarsamkoma. Þetta er upphaf langrar ferðar sem lýkur með pompi og prakt á frumsýningunni.  Allir velkomnir, aðgangur er ókeypis og heitt kaffi verður á könnunni.

Sagan: Tvö störf. Þrír umsækjendur. Vinnufélagar bíða eftir mikilvægu starfsviðtali og fjandinn er laus. Fals og lygi svífa yfir vötnunum. Persónurnar leggja sig fram um að atast hver í annarri af grimmilegu miskunnarleysi. Staðan er fullkomlega ótrygg og áhorfendur komast ekki hjá því að sogast inn í keppnina. Samviskubitið gerir sig líklegt til að naga okkur á hol. Leikskáldið bendir á nístingskaldan sannleikann um okkur sjálf. Enginn vill vera í hlutverki þess sem tapar.

Höfundurinn: Mike Bartlett (f.1980) er eitt helsta og afkastamesta leikskáld Breta um þessar mundir. Hann hefur sent frá sérfjöldamörg verk á undanförnum arum, Bull (At) var frumsýnt 2013 og endursýnt í Young Vic leikhúsinu í London 2015 þar sem það hlaut frábærar viðtökur og var sýnt fyrir fullu húsi í margar vikur. At hlaut Bresku leiklistarverðlaunin árið 2013 sem besta nýja leikritið.

Aðstandendur Höfundur: Mike Bartlett | Þýðing: kristín Eiríksdóttir | leikstjóri: Kristín Eysteinsdóttir | Tónlist: Hallur Ingólfsson | Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen | Leikmynd & búningar: Gretar Reynisson| Lýsing: Þórður Orri Pétursson | Leikarar: Eysteinn Sigurðarson, Valur Freyr Einarsson, Vala Eiríksdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson.