Jólafrumsýning Borgarleikhússins í ár er Ofviðrið eftir William Shakespeare í nýrri þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar og leikstjórn Oskaras Korsunovas. Ofviðrið hverfist um heiftarleg átök hinna æðri og lægri hvata. Leikrit sem fjallar um fegurðina í dyggðinni og hina nauðsynlegu fyrirgefningu eftir áföll. Of­viðrið er dásamlegur gleðileikur uppfullur af húmor, ást og krafti. Hér er öllu tjaldað til, ástsælustu leikarar þjóðarinnar, Íslenski dansflokkurinn og einn fremsti leikstjóri heims.

Ofviðrið gerist á eyju, einhvers staðar og hvergi – í ríki hugarflugsins. Þar ræður ríkjum Prospero sem búið hefur í útlegð árum saman ásamt ungri dóttur sinni, skrímslinu Kaliban og Ariel þjóni sínum. Nú loks gefst tækifæri til að gera upp mál­in þegar ofsaveður skolar skipi þeirra sem sviku Prospero á land eyjunnar. Atburða­rásin sem tekur við er fjörleg enda er upp­gjör framundan, ástin kraumar og hinar líkamlegu hvatir eru sterkir drifkraftar.

Oskaras Koršunovas hefur verið í hópi fremstu leikstjóra Evrópu síðustu ár og er auk þess leikhússtjóri Borgarleikhússins í Vilníus. Hann hefur sett upp kraftmiklar sýningar klassískra verka og eftirtekt­arverðar uppsetningar á nútímaverkum. Koršunovas hefur hlotið fjölda viðurkenn­inga fyrir verk sín, meðal annars Evrópsku leiklistarverðlaunin. Margverðlaunuð upp­færsla Koršunovas á Rómeó og Júlíu var á dagskrá Listahátíðar í vor þar sem hún vakti mikla hrifningu.

Leikarar eru Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Jörundur Ragnarsson, Jóhann Sigurðarson, Þröstur Leó Gunnarsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Hilmar Guðjónsson, Hanna María Karlsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Halldór Gylfason.
Dansarar eru Katrín Ingvadóttir, Aðalheiður Halldórsdóttir, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Guðmundur Elías Knudsen, Steve Lorenz, Cameron Corbett, Katrín Johnson og Hannes Egilsson

Leikmynd: Vytautas Narbutas
Búningar: Filippía Elísdóttir
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Danshöfundur: Katrín Hall
Hljóð: Jakob Tryggvason

{mos_fb_discuss:2}