Fimmtudaginn 6. maí frumsýnir Áhugaleikhús atvinnumanna Ódauðlegt verk um stríð og frið eftir Steinunni Knútsdóttur. Verkið sem var forsýnt á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni LOKAL, er viðleitni til þess að skilja hvað það er í mannlegu eðli og samskiptum sem leiðir til átaka og ófriðs og er þriðja verkið í fimm verka röð eða kvintólógíu um mannlegt eðli sem leikhúsið er að vinna að. Verkin eru rannsókn á áráttuhegðun mannkyns og ófullkomleika. Þau feta sig inn í augnablikið þar sem maðurinn stendur berskjaldaður frammi fyrir guði og viðurkennir vanmátt sinn.

Um leið og verkin eru hvert um sig rannsókn á mannlegu eðli eru þau einnig tilraun. Hvert verk um sig tekur á eiginleikum, þáttum eða áráttum í mannlegri hegðun og tilvist og varpa nýju ljósi á þekktar staðreyndir.

Áhugaleikhús atvinnumanna er hópur atvinnufólks í sviðslistum sem hefur áhuga á frelsi til óháðrar listsköpunar í leiklist. Leikhúsið lítur á leiksýningar sínar sem vettvang til að velta áleitnum spurningum fyrir sér þó ekki sé langt í kímni og kæruleysi. Markmiðið með starfinu er að að skapa framsækin og áleitin sviðslistaverk sem í eðli sínu eru samtal við áhorfendur og eru óháð markaðsöflum. Leikhúsið vill ekki fara í viðskiptasamband við áhorfendur sína og býður þess vegna áhorfendum í samtal án endurgjalds og þiggur ekki aðgangseyri á sýningar sínar.

Listamenn leikhússins fengu nýverið úthlutað listamannalaunum.

Þátttakendur:
Leikstóri: Steinunn Knútsdóttir
Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson
Texti: Hrafnhildur Hagalín,
Söngþjálfi/kórstjóri: Margrét Pálmadóttir
Leikarar: Aðalbjörg Árnadóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Hannes Óli Ágústsson, Hera Eiríksdóttir, Jórunn Sigurðardóttir, Kristjana Skúladóttir, Lára Sveinsdóttir, Marta Nordal, Orri Huginn Ágústsson, Ólöf Ingólfsdóttir, Sverrir Einarsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson.

{mos_fb_discuss:2}