Leikfélag Kópavogs fagnar vorblíðunni með stuttverkadagskránni Ó mig auman, í kvöld, miðvikudag 4. júní. Sýnd verða sex verk eftir höfunda í leikritasmiðju félagsins. Leikritin eru í ýmsum dúr en eiga þó eitt og annað sameiginlegt. 

Dagskráin hefst kl. 20.30 í Leikhúsinu við Funalind 2 og sýningartími er um klukkustund.

Verkin sem verða sýnd eru:
Í kjallaranum e. Úlfhildi Örnólfsdóttur
Kæra dagbók e. Sigríði Elínu Olsen
Æ nei e. Oddfreyju H. Oddfreysdóttur
Umferð e. Aðalstein Jóhannsson
Sixtínska e. Ólaf Þórð Þórðarson
Vent í kross e. Ingveldi Láru Þórðardóttur

Miðasala er á Tix.is. Miðaverð 1.000,