Leikfélag Akureyrar býður konum á sýninguna Kvenfólk í Samkomuhúsinu þann 24. október.  Sýningin hefst klukkan 15.00 og er aðgangur ókeypis. Kvenfólk er 323. sviðsetning Leikfélags Akureyrar og hefur fengið frábæra dóma og mikið lof áheyrenda en þetta er nýtt íslenskt sviðsverk eftir Hund í óskilum. Dúettinn Hund í óskilum skipa þeir  Hjörleifur Hjartarsson og Eiríkur Stephensen, en þeir eru bæði höfundar og flytjendur verksins. Þeir eru þó ekki alveg einir á báti heldur njóta fulltingis  kvennahljómsveitar í sýningunni. Í Kvenfólk fara þeir Hjörleifur og Eiríkur  á hundavaði yfir kvennasöguna undir leikstjórn Ágústu Skúladóttur.  
Sýningin hefur verið sýnd fyrir fullu húsi frá því hún var frumsýnd þann 29.september. 
 
Í tilefni af Kvennafrídeginum hafa LA og Hundur í óskilum ákveðið að bjóða öllum konum á þessa frábæru sýningu án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir. 
 
Um Hund í Óskilum
Hundur í óskilum er margrómaður og verðlaunaður dúett sem er leikhúsgestum að góðu kunnur fyrir leiksýningar sínar Sögu þjóðar sem hlaut Grímuverðlaunin árið 2012 og Öldina okkar sem gekk fyrir fullu húsi í Samkomuhúsinu og svo í Borgarleikhúsinu í kjölfarið. En Öldina okkar unnu þeir einnig með Agústu Skúladóttur.
 
Um Kvenfólk 
Kvenfólk – Kvennasagan á hundavaði er drepfyndin sagnfræði með söngvum. Hundur í óskilum heldur hér áfram að varpa óvæntu ljósi á Íslandssöguna með húmorinn að vopni. Nú er komið að sögu kvenna og kvennabaráttu. Frá því að konan kom til landsins í lok nítjándu aldar hafa íslenskir karlmenn gert sitt besta til að laga sig að breyttum aðstæðum. En hefur þeim tekist sem skyldi? Sagan greinir frá örfáum konum – raunar svo fáum að það er búið að skíra rakettur í höfuðið á þeim öllum.  Hundur í óskilum veltir við hverjum steini og grefur upp ýmislegt óvænt og skemmtilegt í sögu jafnréttisbaráttunnar. 
 
Um Leikfélag Akureyrar
Leikfélag Akureyrar varð hundrað ára þann 19. apríl þessa árs og er því sprellfjörugur öldungur. Kvenfólk er 323 sviðsetning Leikfélags Akureyrar og er ein af þremur leiksýningum sem LA setur upp leikárið 2017-2018. Saga félagsins er algerlega samofin sögu þess samfélags sem það sprettur úr fyrst sem áhugaleikhús og svo sem atvinnuleikhús. Leiksýningar félagsins hafa orðið að segul fyrir áhorfendur heima og handan heiða. Auk þess hefur félagið gert strandhögg með sínar leiksýningar í höfuðborginni við frábæran orðstír.