Fyrirhugað er að halda tvö námskeið í leikhúsförðun í október. Það fyrra, sem er byrjendanámskeið, er þegar orðið fullt og kominn biðlisti en enn er hægt að skrá sig á framhaldsnámskeiðið. Skráningu lýkur laugardaginn 15. september
Framhaldsnámskeið í leikhúsförðun, kennari Gréta Boða
Þátttökugjald: kr. 14.000
Tími: 26. til 28. október 2007
Staður: Laugavegur 96, II hæð
Skráningu lýkur 15. september
Námskeiðið er sjálfstætt framhald af fyrra förðunarnámskeiðinu, ætlað þeim sem einhverja reynslu hafa af förðun fyrir leikhús og/eða hafa sótt byrjendanámskeið.
Kennd verður karakterförðun, unnið með latex, skalla, krephár og fleiri efni sem notuð eru til að breyta og bæta ásýnd leikarana á sviðinu.Kennt verður að búa til skallahettur, setja þær á og farða. Einnig að búa til skegg, augabrúnir og barta úr kréphári og líma það á. Latex, Tuplast og fleira notað til að gera fólk eldra, ásamt förðuninni sjálfri. Notaðar verða förðunarvörur frá Grimas og Kryolan.
Náskeiðið verður sett föstudaginn 26. október kl. 18.00 og unnið verður til kl. 22.00 um kvöldið. Á laugardaginn er unnið frá 9.00 til 18.00 með matarhléum og á sunnudaginn frá 9.00 til 16.00.
Sendið skráningar á netfangið info@leiklist.is og takið fram eftirtalin atriði: Nafn, kennitölu, heimili, síma og netfang.
Þátttökugjaldið skal svo greiða inn á reikning 1150-26-5463, kt. 440169-0239