Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir hinn vel þekkta farsa Nei, ráðherra eftir Ray Cooney, í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar, sunnudaginn 24. apríl klukkan 20:00.  Leikstjóri er Jóel Sæmundsson.

Alls koma 35 manns að sýningunni, þar af eru 10 leikarar en  leikarahópurinn er blandaður reynsluboltum  og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviðinu. Nei, ráðherra  er allt í senn sigildur, hraður, snúinn og fyndinn gamanleikur og fullur af sígildu hráefni farsans svo sem misskilningi, framhjáhaldi, ást og hurðaskellum.

Æfingatímabilið hefur gengið vel sem er mikil breyting hjá félaginu eftir hremmingar vegna Covid undanfarin misseri.
Sýningar verðar 13 talsins og miðasala er hafin í  síma 8499434.

Myndirnar eru teknar á æfingu af Gunnhildi Gísladóttur.