Leikfélag Hólmavíkur stendur í ströngu um þessar mundir við uppsetningu á upp gamanleikritinu Nanna systir eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson, undir styrkri leikstjórn Skúla Gautasonar. Frumsýnt verður sunnudaginn 7. apríl. Leikarar í leikritinu eru tíu, fimm konur og fimm karlar. Sumir leikararnir eru gamalreyndar kanónur og aðrir eru að stíga sín fyrstu skref á leiksviði með Leikfélagi Hólmavíkur en þau eru öll jöfn í þessari stórskemmtilegu uppsetningu.
Sögusvið Nönnu systur er samkomuhús í íslensku sjávarþorpi árið 1996. Þar stendur til að setja upp söngleik um Fjalla-Eyvind. Óvæntar heimsóknir og uppákomur setja þó strik í reikninginn. Það gengur á ýmsu og útkoman er vægast sagt skrautleg.
Fjórar sýningar verða í félagsheimilinu Sævangi á Ströndum og svo verður farið í fimm daga leikferðalag. Sýningatímar og staðir eru eftirfarandi:
Sýningar í Sævangi:
Frumsýning: 7. apríl kl. 20:00
2. sýning: 11. apríl kl. 20:00
3. sýning: 12. apríl kl. 20:00
4. sýning: 21. apríl (Páskadag) kl. 20:00
Leikferð:
Dalabúð í Búðardal: 24. apríl kl. 20:00
Samkomuhúsið Grundarfirði: 25. apríl kl. 20:00
Lyngbrekka í Borgarfirði: 26. apríl kl. 20:00
Árgarður í Skagafirði: 27. apríl kl. 20:00
Víðihlíð í Húnaþingi Vestra: 28. apríl kl. 20:00
Nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á Facebook-síðu Leikfélags Hólmavíkur.