Leikhópurinn Munaðarleysingjar frumsýnir nýtt verk eftir Dennis Kelly, eitt heitasta leikskáld Bretlandseyja föstudaginn 8. janúar í sal Norræna hússins. Verkið heitir Orphans en á íslensku nefnist það Munaðarlaus. Leikstjóri sýningarinnar er Vignir Rafn Valþórsson sem jafnframt þýðir verkið. Leikhópurinn samanstendur af ungum leikurum, Hannesi Óla Ágústssyni, Stefáni Benedikt Vilhelmssyni og Tinnu Lind Gunnarsdóttur,  sem  ákváðu að fjárfesta í réttinum á þessu nýja og vinsæla verki og setja það upp sjálf – en hópurinn hefur enga styrki hlotið fyrir uppsetningunni.

Munaðarlaus er verk sem rannsakar heim sem fæst okkar þekkja og viljum ekki vita af en er beint fyrir utan dyrnar okkar. Hversu langt erum tilbúin að ganga til að vernda okkar nánustu? Hvernig getur samviskan haldist hrein þegar allir sveigja réttlætið að eigin þörfum? Danni og Helena eru búin að redda pössun, kæla vínið, kveikja á kertum og eru sest við kvöldverðarborðið. Allt stefnir í fullkomna kvöldstund þegar Ívar, bróðir Helenu, mætir á svæðið. Útataður í blóði.

Þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir Dennis Kelly er frumsýnt á Íslandi en verk hans hafa vakið mikla athygli. Verk hans hafa verið sýnd um gervalla Evrópu og Norður Ameríku og var nýlega valinn Besta Erlenda Leikskáldið af þýska leiklistartímaritinu Theatre Heute fyrir verk sitt Taking Care of Baby. Munaðarlaus, eða Orphans, var frumsýnt á Edinborgar-hátíðinni nú í sumar við frábærar undirtektir. Þar hlaut verkið Fringe First verðlaunin og Herald Angel verðlaun hátiðarinnar. Það var síðan frumsýnt í Birmingham Repertory Theatre nú í september og í Soho Theatre í London þann 8. október. Verkið fékk m.a. 5 stjörnur hjá Time Out og mjög góða dóma í öllum helstu fjölmiðlum Bretlands.

Munaðarlaus verður frumsýnt þann 8. janúar í Norræna húsinu klukkan 19:55. Aðeins 8 sýningar eru áætlaðar af verkinu. Miðaverðinu verður stillt í hóf og kostar 2000 krónur inn. Afsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja.

Vignir Rafn Valþórsson útskrifaðist úr Leiklistardeild LHÍ vorið 2007.  Vignir hefur eftir útskrift starfað hjá Þjóðleikhúsinu og með leikhópnum Vér Morðingjar.

Hannes Óli Ágústsson útskrifaðist úr Leiklistardeild LHÍ vorið 2009. Hannes hefur unnið eftir útskrift með Hreyfiþróunarsamsteypunni og Áhugafélagi Atvinnumanna ásamt því að leika í kvikmyndinni Bjarnfreðarson.

Stefán Benedikt Vilhelmssson útskrifaðist úr Leiklistardeild LHÍ vorið 2009. Stefán hefur m.a. rekið Frú Normu leikhús frá 2006.

Tinna Lind Gunnarsdóttir útskrifaðist úr Leiklistardeild LHÍ vorið 2007. Tinna hefur eftir útskrift starfað hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Leikfélagi Akureyrar.

Tölvupóstur miðasölu: munadarlaus@gmail.com
Pöntunarsími: 895 9919

{mos_fb_discuss:2}