„Þegar hátíð fer í hönd, búa menn sig undir hana, hver á sína vísu.“ Þannig hefst saga Gunnars Gunnarssonar, Aðventa. Bókin kom út árið 1939 og er hún sú saga Gunnars sem víðast og oftast hefur verið gefin út. Hér er sagt frá svaðilförum vinnumannsins Benedikts sem fer til fjalla í vetraríki aðventunnar að leita þess fjár sem eftir varð er smalað var um haustið. Sagan byggir á  frásögnum af frægum svaðilförum Benedikts Sigurjónssonar,  öðru nafni Fjalla-Bensa, á Mývatnsöræfum.  Hér er á ferðinni klassísk saga um náungakærleika og fórnfýsi. Leikari í sýningunni er Pétur Eggerz.

Sýningar fara fram í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
Sunnudaginn 29. nóvember kl. 16
Miðvikudaginn 9. desember kl. 20

Leikstjóri og höfundur leikgerðar: Alda Arnardóttir
Tónlist og hljóðmynd: Kristján Guðjónsson
Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir

Aðgangseyrir: Kr. 2.000.-

Miðasala fer fram í síma s. 562 2669, 897 1813 og á moguleikuhusid@moguleikuhusid.is
www.moguleikhusid.is

{mos_fb_discuss:2}