Leikfélag Hveragerðis frumsýnir gamla góða ævintýrið um Mjallhvíti og dvergana sjö í nýrri leikgerð Hafsteins Þórs Auðunssonar föstudaginn 14. mars nk. í Leikhúsinu, Austurmörk 23. Hafsteinn er einnig leikstjóri og höfundur tónlistar sem útsett er af Guðmundi Eiríkssyni, píanóleikara sýningarinnar.
Í byrjun janúar hélt Leikfélagið leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára. Leiðbeinandi var Hafsteinn Þór Auðunsson. 25 krakkar tóku þátt í námskeiðinu og meira en helmingur þeirra taka þátt í þessari sýningu. Leikarar eru alls 32 á aldrinum 8-55 ára.
Leikfélag Hveragerðis var stofnað 1947 og hefur sett upp á hverju ári sýningar sem sumar hverjar hafa vakið mikla athygli fyrir metnað og áræði. Leikmyndin, sem er ævintýri líkust, er máluð af tveimur listamönnum í Hveragerði, þeim Kolbrúnu Vilhjálmsdóttur og listmálaranum Víði Ingólfi Þrastarsyni sem notar listamannsnafnið Myrmann.
Sýningar:
Föstudaginn 14. mars frumsýning kl. 17.00
Laugardaginn 15. mars kl. 14.00
Sunnudaginn 16. mars kl. 14.00
Fimmtudaginn 20. mars kl. 18.00
Laugardagur 22. mars kl. 14.00
Sunnudagur 23. mars kl. 14.00
Fimmtudaginn 27. mars kl. 18.00
Miðaverð 2000 kr.
eða 1700 kr. fyrir hópa (10 eða fleiri)
Allar nánari upplýsingar má finna á https://www.facebook.com/hveroleikhus?fref=ts