Í sköpunarferli Minnisvarða hafa 16 elskendur kannað hvar uppsprettu þessarar áherslu á sjónarspilið er að finna og hvernig á því stendur að það falli einstaklega vel að ríkjandi samfélagsskipan hins vestræna heims.
Verkið tekst á við þversagnir í tilveru mannsins og leit hans að staðfestingu á réttmæti tilveru sinnar í endalausu kosmósi um leið og hann minnir okkur á möguleikana handan sjónarspilsins.
Frumsýning 7. mars kl. 20.00
Miðasala í síma 527-2100, í netfangið midasala@tjarnarbio.is og rafrænt hér.