Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, föstudaginn 30. apríl 2010 kl. 12:30-16:45. Á þinginu verður kynnt greining á núverandi menningarstefnu á sviði lista, menningararfs, safna, fjölmiðla og æskulýðs- og íþróttamála. Tilgangur þingsins er að fá viðbrögð við fyrirliggjandi greiningu og að fá fram hugmyndir sem gætu nýst í áframhaldandi vinnu við mótun menningarstefnu til framtíðar.

Einnig verður kynnt sóknaráætlun stjórnvalda í menningarmálum og nýleg menningarneyslukönnun.

Dagskrá
12.30 Skráning
13:00 Setning; Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra
13.10 Framsöguerindi:
– Kynning á skýrslu um núverandi menningarstefnu. Dr. Haukur F. Hannesson listrekstrarfræðingur
– Kynning á menningarmálum í Sóknaráætlun 20/20.
– Kynning á menningarneyslukönnun. Gunnar J. Árnason sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti
14.00 Starf vinnuhópa
15.30 Kaffi
16.00 Samantekt
16.45 Ráðstefnuslit

Á þinginu verður unnið í vinnuhópum með fjóra málaflokka sem eru:
– listir
– menningararfur og söfn
– fjölmiðlar
– íþrótta- og æskulýðsmál

Við skráningu þurfa þingfulltrúar að velja einn af málaflokkunum. Áhugasamir eru beðnir að skrá sig á þingið og í hópana á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis eigi síðar en 26. apríl.

Menningarþingið er öllum opið en nauðsynlegt getur reynst að takmarka þátttöku vegna húsrýmis en ráðstefnusalurinn tekur 200 manns í sæti.

Aðgangur er ókeypis.

{mos_fb_discuss:3}