Leikfélag Hveragerðis sýnir um þessar mundir söngleikinn vinsæla um Litlu Hryllingsbúðina. Litla Hryllingsbúðin er sígildur söngleikur, fullur af húmor, góðri tónlist, heillandi persónum og krassandi söguþræði. Baldur Snær þrælar alla daga í blómabúð Markúsar á Skítþró og dreymir um ástir Auðar, en hún er í tygjum við leðurklæddan tannlækni með kvalalosta. Dag einn uppgötvar Baldur dularfulla plöntu sem á eftir að breyta lífi hans. Leikstjóri er Jóel Sæmundsson.

Miðasala er á Tix.is. Nánari upplýsingar um hópasýningar og tilboð veitir María í síma 8968522.