Leikfélag Hornafjarðar frumsýnir söngleikinn Lísu í Undralandi, laugardaginn 9. mars. Lísa leggur af stað í ótrúlegt ferðalag þar sem á vegi hennar verða ýmsar furðuverur og og hún lendir í allskonar óvæntum uppákomum. Leikstjóri er Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir og er þetta frumraun hennar sem slíkur.

Alls taka 14 leikarar þátt í sýningunni en í hlutverki Lísu er Magndís Lóa Aðalsteinsdóttir. Birna Jódís Magnúsdóttir sér um leikmynd, búninga og útlitshönnun en lætur það ekki nægja þvi hún fer einnig með hlutverk Hjarta Drotningarinnar. Hafdís Hauksdóttir er tónlistarstjóri og fer einnig með hlutverk kálormsins. Ljósahönnuður er Þorsteinn Sigurbergsson. Leikhópurinn er afar fjölbreyttur og má m.a. nefna að aldursdreifing í hópnum er frá 17 til 64 ára.

Sýnt er Í Mánagarði og miðasala er á Facebooksíðu Leikfélags Hornafjarðar og í símum 691-6750 og 892-9354 milli kl. 17.00-19.00.