Þjóðleikhúsið auglýsir eftir fjórum nýjum íslenskum leikritum fyrir nýtt Hádegisleikhús Þjóðleikhússins og Sunnudagsleikhús RÚV.

Þjóðleikhúsið mun hleypa af stokkunum nýju Hádegisleikhúsi næsta haust og er það hluti af fjölmörgum nýjungum í starfsemi leikhússins í haust. Hádegisleikhúsið kemur til viðbótar við aðra starfsemi Þjóðleikhússins og sýningum á hefðbundnum sýningartímum.  Þar munu gestir njóta leiksýningar um leið  og þeir snæða hádegisverð. Hádegisleikhúsið verður starfrækt í Þjóðleikhúskjallaranum sem fær andlitslyftingu í sumar. Fjórar leiksýningar verða frumsýndar í Hádegisleikhúsinu á næsta leikári.

Í tengslum við þessa nýjung hleypir leikhúsið og RÚV af stokkunum nýju samstarfsverkefni. Auglýst er eftir handritum að fjórum nýjum íslenskum verkum sem verða frumflutt í Hádegisleikhúsinu og svo tekin upp til sýninga í Sunnudagsleikhúsi RÚV sem hleypt verður af stokkunum á árinu 2021.  Nú er auglýst eftir handritum eða ítarlegum hugmyndum að verkum sem eru 20-25 mínútur að lengd. Fjögur verkefni verða valin til þróunar og sýninga. Óskað er eftir tilbúnum handritum eða ítarlegum hugmyndum að leikverkum fyrir einn til þrjá leikara. Æskilegt er að verkið krefjist ekki flókinnar umgjarðar. Fjögurra manna nefnd mun velja handritin en í henni sitja Hrafnhildur Hagalín, formaður, Ólafur Egill Egilsson, Skarphéðinn Guðmundsson og Þorgerður E. Sigurðardóttir. Frestur til að skila inn handritum og hugmyndum að verkum er til 15. maí nk. Nánari upplýsingar eru á vef Þjóðleikhússins.

Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Hagalín hjá Þjóðleikhúsinu.