Leiklistarskóla BÍL var slitið í 27. sinn sunnudaginn 23. júní að Reykjum í Hrútafirði. 52 nemendur luku þar námí á fjórum námskeiðum; Leiklist I, Leikritun I, Leikstjórn IV og Sérnámskeiði fyrir leikara. Daginn áður fór fram ógurleg leikhúsveisla þar sem fluttir voru alls 19 leikþættir sem unnið hafði verið með vikuna á undan. Skólanefnd og stjórnendur þakka nemendum, kennurum, starfsmönnum og gestum fyrir vel heppnað starfsár.
Leiklistarskóla BÍL slitið í 27. sinn
