ImageKómedíuleikhúsið stendur fyrir leiklistarnámskeiði í Edinborg á Ísafirði dagana 16. – 18. september. Um er að ræða spunanámskeið þar sem unnið verður með röddina og líkamann. Búnar verða til senur og í lok námskeiðs verður endað með lítilli sýningu.

Kennari er Steinunn Knútsdóttir, kennari við Leiklistardeild Listaháskóla Íslands sem hefur getið sér gott orð í leikhúsinu síðastliðin ár meðal annars með leikhóp sínum Lab Loki og víðar. 

Námskeiðsgjald er 6.500.-kr.  og skráning og nánari upplýsingar má fá hjá Kómedíuleikhúsinu í síma:  891 – 7025.

Vefur Kómedíuleikhússins á  Ísafirði er á  www.komedia.is