Í september hefst leiklistarnámskeið á vegum Leikfélags Kópavogs sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár. Námskeiðið verður 18 klst. í heildina, 3 klst. í senn í 6 skipti og aldurstakmark er 21 árs. Námskeiðsgjald er 10.000 kr. en skráðir félagsmenn greiða 5.000 kr.
Athugið að skráning í félagið er öllum opin gegn 3.000 kr. félagsgjaldi. Sjá nánar hér.
Námskeiðið hefst mánudaginn 9. september og eru námskeiðstímar sem hér segir:
Mán. 9. sept. kl. 19.00-22.00
Fim. 12. sept. kl. 19.00-22.00
Lau. 14. sept. kl. 10.00-13.00
Mán. 16. sept. kl. 19.00-22.00.
Fim. 19. sept. kl. 19.00-22.00
Lau. 21. sept. kl. 10.00-13.00