Leikklúbburinn Saga frumsýnir í kvöld, 6. ágúst, leikritið Leyndarmál eftir Jónínu Leósdóttur. Leikstjórn er í höndum leikhópsins en hann skipa ungmenni á aldrinum á aldrinum 15 til 25 ára. Leikritið verður sýnt í Rýminu á Akureyri miðvikudags- og fimmtudagskvöld klukkan 20.30. Á föstudagskvöld hefst sýning hins vegar klukkan 19.30. Leikklúbburinn Saga var stofnaður árið 1976 en var endurreistur í fyrra eftir að hafa legið nokkur ár í dvala.

Leyndarmál segir af vinahópi í framhaldsskóla. Þau eru hvert með sínu laginu en fljótlega kemur í ljós að aðalpersónana, Sólveig, á í einhverju sálarstríði. Hún er vansæl og líður illa heima hjá sér. Foreldrar hennar geta lítið gert til að hjálpa henni. Loksins getur hún ekki falið leyndarmál sitt lengur, og trúir vini sínum, sem er hommi, að hún sé líka samkynhneigð. Flestir vinanna taka þessum tíðindum vel, en fyrstu viðbrögð foreldranna eru hins vegar í líkingu við það sem hún óttaðist, þangað til hún fær stuðning úr óvæntri átt.

Miðaverð er kr. 1.500 og eru miðar aðeins seldir á staðnum.