Leikfélagið Sýnir frumsýnir leikverkið Eyjuna á Akureyri 2. ágúst n.k.

Eyjan er spunaverk sem segir sögu þriggja kvenna sem lenda saman á eyðieyju eftir hræðilegt flugslys og verða að takast á við nýjan veruleika. Ekki er allt sem sýnist á eyjunni og stuttu eftir brotlendinguna byrja mörkin milli draums og veruleika að mást út. Innan skamms eru konurnar þrjár komnar í baráttu upp á líf og dauða.

Leikfélagið Sýnir hefur starfað af metnaði um margra ára bil og sýnt fjölmargar sýningar af ýmsum toga, flestar utandyra. Félagar í leikfélaginu eiga það sameiginlegt að hafa sótt námskeið í Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga.

Verkið er frumraun Snæbjörns Brynjarssonar sem leikstjóra, nýútskrifaðs nemanda úr leiklistardeild Listaháskólans, en það er skrifað í sameiningu af öllum þeim sem koma að sýningunni. Leikkonur eru Guðrún Sóley Sigurðardóttir, Kristín Svanhildur Helgadóttir og Ingrid Karlsdóttir, en allar hafa þær talsverða reynslu að baki og hafa sótt ýmis námskeið tengd leiklistinni.

Leikhópurinn mun sýna á mörgum stöðum út um landið, t.d. á Akureyri um verlsunarmannahelgina og á Fiskideginum mikla á Dalvík, en flestar sýningar verða í Hellisgerði í Hafnarfirði.

{mos_fb_discuss:2}