Opið hús verður í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 3. september milli 3-5. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Vetrarstarfið verður kynnt hjá Borgarleikhúsinu, Íslenska dansflokknum og Sönglist. Persónur úr verkum vetrarins spígspora um leikhúsið. Hvað gerist þegar Hitler og Ronja mætast? Eða Mozart og Tarzan?

Boðið verður upp á veitingar fyrir unga sem aldna. Starfsfólk Borgarleikhússins, með leikhússtjórann í broddi fylkingar, bakar vöfflur fyrir gesti og gangandi, það verður heitt á könnunni og svaladrykkir fyrir börnin. Dagskrá með lifandi tónlist verður í tvo tíma. Geirfuglarnir spila, Laddi og Eggert Þorleifsson ætla að gera það gott. Flutt verða tónlistaratriði úr Ronju, Gretti og Footloose og börn úr Sönglist troða upp. Einnig verður hægt að fylgjast með æfingum á Amadeusi, Mein kampf og hjá Íslenska dansflokknum. 

Opnuð verður sýning á myndunum sem bárust í teiknisamkeppnina “Ronja ræningjadóttir í sumarfríi” og  mun Ronja sjálf afhenda verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.
 
Leikfélag Reykjavíkur fagnar 110 ára afmæli sínu á þessu leikári og af því tilefni býður það tilboð á 3ja sýninga áskriftarkortum á 3.000 krónur. Kortið gildir á Mein Kampf, sem frumsýnt verður í september, Dag vonar, sem frumsýnt verður í janúar, og eina sýningu að eigin vali hjá Leikfélagi Reykjavíkur.  Kortin verður aðeins hægt að kaupa laugardag og sunnudag.