Föstudagskvöldið 13. mars mun enn eitt stórverkið verða frumsýnt í Frumleikhúsinu en þar er á ferðinni hryllingssöngleikurinn Hin illa dauðu sem byggður er á hryllingsmyndunum Evil dead I, II og III. Nokkrir leikfélagsmeðlimir réðust í þýðingu á verkinu nú eftir áramótin og réðu leikstórann Guðmund L. Þorvaldsson til að leikstýra. Tónlistarstjórn er í höndum Júlíusar Guðmundssonar eins og oft áður en hann annaðist einnig allan undirleik.

Þetta er sannkallað tímamótaverk hjá félaginu og sýnir enn og aftur þann dugnað, kraft og áhuga sem býr í félagsmönnum þess. Það eru bæði reyndir sem og óreyndir leikarar sem halda sýningunni á lofti með leik, söng og dansi og brellurnar eru ótrúlegar. Markhópur þessarar sýningar er frá unglingum og upp úr, viðkvæma sem óviðkvæma enda góð blanda af  hryllingi, söng, alvöru og meinfyndnum atriðum í þessu verki.

Leikfélag Keflavíkur hefur á undanförnum árum verið eitt af öflugri áhugaleikfélögum landsins. Það hefur sett á svið metnaðarfullar sýningar og óhikað þorað að taka áhættu á óþekktum verkum sem og þekktari og ráðið til starfa þekkta leikstjóra jafnt sem unga og óreynda.

{mos_fb_discuss:2}