Leikfélag Vestmannaeyja leitar eftir góðum leikstjóra til uppsetningar á  söngleik eftir áramót. Starfstími er frá 30. janúar og út mars 2014, auk skipulags vinnu hluta úr desember. Leikfélag Vestmannaeyja er áhugaleikfélag sem er á 103. starfsári sínu. Félagið býr yfir stóru húsnæði á þrem hæðum þar sem kjöraðstæður eru til sýninga og æfinga auk þess sem búnaður, hljóðkerfi og ljós, hefur verið mikið endurnýjaður á síðustu árum. Umsóknarfrestur er til 30. október 2013.

Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á birkir.hognason@gmail.com. Allar nánari upplýsingar gefur Birkir Thór Högnason, framkvæmdastjóri í síma 772-1870.

Leikfélag Vestmannaeyja