Óperan Bjarmaland – rísandi land fjallar á spaugilegan hátt um nútíma íslendinga sem hafa hvert á sinn hátt farið í gegnum hraðar þjóðfélagsbreytingar undanfarinnar ára og náð mismunandi lendingu eða ekki lendingu á nýja Íslandi. Hjón í greiðsluaðlögun rata á barinn, sauðfjárbóndi og femínisti hittast af tilviljun, bótasvindlarar ráða ráðum sínum og listaspírur villast inn á leið sinni á sinfóníutónleika í Hörpu. Ekki má gleyma drykkfelldum presti sem mætir á staðinn af þörf en ekki endilega af nauðsyn. Barþjónninn stjórnar svo samkvæminu eftir því sem við á.
Á þessu sjötta leikári Peðsins þá eru þetta tólfta og þrettánda uppfærsla leikfélagsins og telur leikhópurinn ásamt tónlistarfólki ríflega þrjátíu einstaklinga að þessu sinni.
{mos_fb_discuss:2}