Vetrarstarfi Leikfélags Selfoss verður ýtt úr vör með hinum árlega haustfundi í Litla leikhúsinu við Sigtún mánudaginn 12. september kl. 20:30. Á fundinum verður dagskrá vetrarins kynnt en margir stórir sem smáir viðburðir verða á dagskrá á leikárinu þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi bæði sem áhorfendur og þátttakendur.

Fundurinn verður léttur og notalegur að vanda, heitt kaffi á könnunni og allir velkomnir. Sérstaklega tökum við vel á móti nýju fólki sem hefur áhuga á að bætast í hina sívaxandi leikhúsfjölskyldu eða vill kynna sér starf leikfélagsins betur.

 

{mos_fb_discuss:3}