Þrjár systur telst löngu orðið klassískt verk, það er skrifað snemma á síðustu öld en efni þess á þó erindi á öllum tímum — brugðið er upp mynd af fólki sem elur með sér drauma um betra líf en hefur ekki döngun í sér til að láta þá rætast.
Klæmint Henningsson Isaksen sér um leikmynd, Dýrleif Jónsdóttir um búninga, Skúli Rúnar Hilmarsson um lýsingu og Hörður Sigurðarson um hljóðmynd og myndvinnslu. Vilborg Valgarðsdóttir og Sara Dögg Davíðsdóttir annast förðun.
Eins og áður segir verður sýningin Þrjár systur frumsýnd næstkomandi föstudag. Næstu sýningar verða:
Sunnudaginn 2. febrúar
Föstudaginn 7. febrúar
Sunnudaginn 9. febrúar.
Miðasala er á midakaup.is/kopleik en einnig er hægt að panta miða með því að senda póst á midasala@kopleik.is. Nánar má lesa um sýninguna og starfsemi félagsins á www.kopleik.is.