Evgenía lifir fábrotnu lífi og sinnir tilbreytingasnauðu starfi á opinberri stofnun. Dag einn knýja örlögin dyra í mynd rykfallins lögfræðings. Erindi hans er að greina frá fráfalli föðurins sem hún aldrei kynntist og koma til hennar arfi. Föðurarfur Evgeníu er sannarlega óvanalegur og líf hennar tekur í kjölfarið heljarstökk með tvöfaldri skrúfu – upp frá þessu verður ekkert venjulegt í tilveru Evgeníu. En hvað er annars venjulegt!?

Leikfélag Kópavogs frumsýnir nýtt íslenskt leikverk er nefnist Hringurinn, sunnudaginn 26. febrúar næstkomandi.

Verkið er eftir Hrefnu Friðriksdóttur, leikstjóri er Hörður Sigurðarson, Sváfnir Sigurðarson leggur til tónlist og hljóðmynd og Skúli Rúnar Hilmarsson hannar lýsingu. Fjölmargir aðrir leggja hönd á í sýningunni og þar á meðal eru 12 leikarar. Guðmann Þór Bjargmundsson sér um myndvinnslu, Rúna Sif Harðardóttir um förðun og að auki koma fjölmargir að smíði leikmyndar og leikmuna.

alfons_amal01_200x150Frumsýning verður á sunnudag eins og áður segir en aðrar sýningar eru:

Þri 28. feb. 
Fim. 1. mars
Fös . 2. mars
Þri. 6. mars
Fim. 8. mars
Lau. 10. mars.

Sýningar hefjast kl. 20.00. Sýnt er í Leikhúsinu Funalind 2. Miðaverð er 2.000 kr. en 1.000 fyrir aldraða og öryrkja. Þá bjóðast hópum, 10 manns eða fleirum miðinn á 1.200 kr. Miðapantanir eru í midasala@kopleik.is eða 554-1985.

{mos_fb_discuss:2}