Þann 17. nóvember n.k. frumsýnir Leikfélag Húsavíkur, Íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness, í leikstjórn Arnórs Benónýssonar. Tónlist er eftir Guðna Bragason og hann er einnig tónlistarstjóri sýningarinnar. Byggt er á leikgerð Bríetar Héðinsdóttur sem hún gerði fyrir Leiklistarskólann árið 1980. Hér er um að ræða eina af bókmenntaperlum þjóðarinnar sem ekki má falla í gleymskunnar dá.
Voru persónur leikverksins til í raun og veru?
Var ástarsaga Snæfríðar og Arnas Arnæusar þyrnum stráð eða eintóm hamingja?
Var Jón Hreggviðsson morðingi eða ekki?
Beygist sögnin að elska á latínu; amo, amas, amat, amamus, amatis, amant?
Hvernig bregst stelpa við þegar þrír karlmenn sýna henni áhuga?
Úr verkinu:
Hvenær drepur maður mann og hvernær drepur maður ekki mann?
Vinur, því dregur þú mig inn í þetta skelfilega hús
Miðasala í Samkomuhúsinu frá 15. nóvember virka daga kl. 16:00 18:00 og tveimur tímum fyrir sýningu. Miðapantanir í símsvara allan sólarhringinn s. 464 1129, gsm: 866 – 4613.
{mos_fb_discuss:2}