Í Listaháskóli Íslands getur fólk lagt stund á kennaranám og útskrifast með kennsluréttindi á leik- grunn-, og framhaldsskólastigi.

Kynning á kennaranámi LHÍ fer fram fimmtudaginn 4. apríl í stofu 211 á annari hæð.

Um kennaranám í LHÍ:
Listkennsludeild Listaháskóla Íslands býður upp á fimm námsleiðir á meistarastigi.
Meistaranám í listkennslufræðum- Fyrir fólk með bakkalárgráðu í listgrein
Meistaranám í kennslufræðum- NÝ NÁMSLEIÐ, fyrir fólk með bakkalárgráðu í öðru en listgreinum.
Meistaranám í listkennslu með aðfararnámi- Fyrir fólk sem hefur lokið amk 120 einingum á bakkalárstigi.
Diplóma í leikskólakennslufræðum- 30 eininga viðbótarnám til leikskólakennsluréttinda fyrir þau sem er með listkennsluréttindi.
Diplóma í listkennslufræðum- Eins árs 60 eininga nám fyrir þau sem eru með meistaragráðu í listgrein.

Inntak námsins miðar að því að þjálfa leiðtogafærni í listgreinakennslu þar sem listafólk vinnur saman og samhliða að kennslufræðilegum úrlausnarefnum bæði innan veggja LHÍ og einnig úti á fagvettvangi. Námið er nemendamiðað og lýkur með meistaragráðu.

Tónlistardeild Listaháskóla Íslands býður upp á meistaranám í söng- og hljóðfærakennslu.
Brautin er ætluð þeim sem lokið hafa bakkalárgráðu eða sambærilegu námi í tónlist. Námið er einnig tilvalin leið fyrir tónlistarkennara sem vilja bæta við þekkingu sína og færni í kennarastarfinu.
Einnig býður tónlistardeild upp á nám í rytmískri og klassískri söng- og hljóðfærakennslu á bakklárstigi.

Nánari upplýsingar um námið er á vef skólans.
Allt áhugasamt fólk er velkomið á kynningu í Listaháskólanum Laugarnesi, þann 12. apríl kl 17.15 – 18.15.