Kómedíuleikhúsið og Lýðveldisleikhúsið frumsýna nýtt íslenskt leikverk í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 18. mars. Verkið nefnist Síðasti dagur Sveins skotta og er eftir Benóný Ægisson og leikhópinn. Hér er á ferðinni kolsvört kómedía um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd árið 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði þegar faðir hans Axlar-Björn var tekinn af lífi fyrir morðverk sín.

Verkið er blanda af leiklist, tónlist og dansi. Helstu höfundar og flytjendur verksins eru: Benóný Ægisson höfundur handrits og tónlistar, Elfar Logi Hannesson leikari, Halldóra Malín Pétursdóttir leik- og söngkona, Henna Riikka Nurmi höfundur sviðshreyfinga, leikari og dansari, Steingrímur Guðmundsson höfundur tónlistar og hljóðfæraleikari og Ársæll Níelsson leikari. Þorsteinn J. Tómasson hannar lýsingu og Marsibil G. Kristjánsdóttir sér um leikmynd og búninga og.

Síðasti dagur Sveins skotta verður einsog áður sagði frumsýnt í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 18. mars kl. 20. Miðasala er hefin í síma 450 5565. Önnur sýning í Edinborg verður laugardaginn 20. mars kl. 20 en aðeins eru áætlaðar þessar tvær sýningar fyrir vestan.

Uppsetning verksins er styrkt af menningarráði Vestfjarða og fyrirtækjum á Ísafirði sem eru vinveitt listum og menningu. Eftir að verkið hefur verið sýnt á Ísafirði verður það sýnt í Reykjavík og víðar um landið.

{mos_fb_discuss:2}