i ballettinn verður með tvær gestasýningar á Klippimyndum – ævintýraleg barnaballetsýning byggð á verkum H.C. Andersens – á Stóra sviði Þjóðleikhússins sunnudaginn 30. október kl. 14:00 og 16:00. Höfundur ballettsins er Pär Isberg.
Tuttugu og sjö börn dansa í sýningunni og fara sum þeirra með veigamikil hlutverk, enda er aðeins einn fullorðinn dansari í sýningunni. Óhætt er að segja að það sé einstök upplifun þegar svo mörg börn koma að því að skapa sviðslistaverk.
Í sýningunni hér á Íslandi verður ballettinn fluttur í styttri útgáfu, auk þess sem dansararnir sýna Bournonvillespor undir stjórn Anne Marie Vessel Schlüter.
Það eru Konunglegi danski ballettinn og listdansskóli Konunglega danska leikhússins sem standa að sýningunni. Danshöfundur er sem fyrr segir Svíinn Pär Isberg, en hann samdi meðal annars ballettinn Hans og Grétu sem naut mikilla vinsælda í Danmörku. Höfundur leikmyndar er Bo Ruben Hedwall, búningar eru í höndum Ann-Mari Anttilla, um lýsingu sér Torkel Blomkvist, tónlistin er eftir Niels W. Gade, Edvard Grieg, Alexander Glazunow og fleiri en um tónlistar- og leikstjórn sér Martin Åkerwall.
Miðasala er hafin á www.leikhusid.is en einnig er hægt að kaupa miða í miðasölu Þjóðleikhússins. Miðaverð er 1.800 krónur.
Í tilefni af heimsókn Konunglega leikhússins verður sérstök kvöldsýning laugardagskvöldið 29. október kl. 20:00 á Klaufum og kóngsdætrum, en þessi frábæra sýning sem valin var barnaleiksýning ársins 2005 byggir einnig á ævintýraheimi H.C. Andersens.
