Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt verk þann 1. mars í Kassanum.  Verkið, Karma fyrir fugla, er eftir þær Kristínu Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétudóttur sem báðar eru myndlistarmenntaðar. Karma fyrir fugla er í senn ljóðrænt og sálfræðilegt verk um afleiðingar ofbeldis, heljartök fortíðarinnar á sálinni, ranglæti og fegurð. Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir en hún hefur á undanförnum árum leikstýrt í Þjóðleikhúsinu rómuðum uppfærslum á nýjum íslenskum verkum, Utan gátta og Svörtum hundi prestsins.

Leikritið Karma fyrir fugla er frumraun höfundanna á sviði leikritunar en verkið hefur verið um nokkra hríð í vinnslu í skjóli leikhússins. Kristín hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli fyrir ljóð sín, smásagnasafnið Doris deyr og skáldsöguna Hvítfeld sem hún sendi frá sér fyrir síðustu jól.

Kannski er Elsa sautján ára stúlka sem er til sölu, kannski er hún miðaldra vændiskona, kannski heimilislaus gömul kona, kannski er hún 130 ára búddanunna. Kannski er Karma fyrir fugla að gerast einmitt hér og nú, kannski á öllum tímum og alls staðar.

Leikarar í sýningunni eru Kristbjörg Kjeld, Mríanna Clara Lúthersdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hilmir Jensson, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Þorsteinn Bachmann. Höfundur leikmyndar og búninga er Anna Rún Tryggvadóttir.  Halldór Örn Óskarsson sér um lýsingu. Höfundar hljóðmyndar eru Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Helgi Þórsson og Steinunn Harðardóttir.