Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 17. október á Stóra sviðinu nýtt leikrit byggt á skáldsögum Kristínar Marju Baldursdóttur um listakonuna Karitas í leikstjórn Hörpu Arnardóttur.

Skáldsögur Kristínar Marju, Karitas án titils og Óreiða á striga, hafa notið mikilla vinsælda og óhætt er að segja að sýningarinnar hafi verið beðið með mikilli eftirvæntingu og hefur nú þegar þurft að bæta við aukasýningum vegna mikillar eftirspurnar.

Í sýningunni kynnumst við listakonunni og móðurinni Karitas sem hefur leitað skjóls í afskekktri sveit eftir að veröld hennar hefur hrunið. Minningabrot og andvökudraumar ásækja hana í hvítum bjarma jökulsins sem gnæfir yfir öllu. Móðurhjarta hennar er þjakað af sorg. Hugsanir um eiginmanninn sem hvarf úr lífi hennar fyrir þrettán árum sækja stöðugt á hana og löngunin til að hlýða kalli listagyðjunnar er knýjandi. Upp er runnin stund þar sem Karitas þarf að taka grundvallarákvörðun varðandi sjálfa sig og líf sitt.

Karitas er átakamikil og hrífandi saga um langanir og þrár, sorgir og ástríður og fórnirnar sem hamingjan og draumarnir geta krafist.

Karitas án titils var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2006. Árið 2008 hlutu Karitas án titils og Óreiða á striga Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna og voru tilnefndar til Menningarverðlauna DV í bókmenntum.

Titilhlutverkið er í höndum Brynhildar Guðjónsdóttur. Björn Hlynur Haraldsson leikur Sigmar og Vigdís Hrefna Pálsdóttir leikur Bjarghildi. Aðrir leikarar í sýningunni eru Kristbjörg Kjeld, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Arnmundur Ernst Backman, Svandís Dóra Einarsdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz, Þórir Sæmundsson og Jónmundur Grétarsson.

Leikgerðina samdi Ólafur Egill Egilsson í samvinnu við Símon Birgisson. Höfundur leikmyndar er Finnur Arnar Arnarson og búninga gerði Þórunn Elísabet Sveinsdóttir. Ólafur Ágúst Stefánsson hannar lýsingu og hljóðmynd gerir Kristinn Gauti Einarsson. Matti Kallio semur tónlist fyrir sýninguna, og er jafnframt hljóðfæraleikari á sýningum.