Miðvikudaginn 22. ágúst verður leikverkið Kameljón eftir Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur, Friðgeir Einarsson og Margréti Örnólfsdóttur frumsýnt í Kúlunni, litla sviði Þjóðleikhússins. Verkið er einleikur og fer Álfrún Helga Örnólfsdóttir með hlutverk Kameljónsins. Texta verksins gerði Margrét Örnólfsdóttir og Friðgeir Einarsson leikstýrir.

Einstök aðlögunarhæfni og sífelld hamskipti valda því að Kameljónið veit ekki lengur hver grunnlitur þess er. Hefur hún, Kameljónið, eitthvert eiginlegt sjálf eða er hún aðeins endurspeglun þeirra sem á vegi hennar verða í lífinu? Lituð af umhverfinu sem hún hrærist í hverju sinni? Hún ákveður að hafa uppi á sjálfri sér, hvað sem það kostar, því maður verður að vera eitthvað. Er það ekki? Það er að minnsta kosti ekki hægt að vera ekkert. Eða… er það?

Kameljón er einnar leikkonu ferðalag um hinar villugjörnu lendur sjálfsins þar sem auðvelt er að týnast. Hún gengur í gegnum stöðugar umbreytingar sem stundum eru svo hamslausar að áhorfendum stendur hreinlega ekki á sama. Já, talandi um áhorfendur, þeir eru Kameljóninu mikilvægir… en líka mjög hættulegir.

Tónlist: Guðmundur Vignir Karlsson.
Leikmynd: Brynja Björnsdóttir.
Búningar: Rósa Hrund Kristjánsdóttir.
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson.
Ljósmynd: Hulda Sif Ásmundsdóttir – huldasif.is.

Samstarfsverkefni. Sýningin er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Frumsýningin í Kúlunni er liður í leiklistarhátíðinni Lókal.