Laugardaginn 26. nóvember kl 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið leikritið Jólaflækju á Litla sviðinu. Verkið er samið og leikstýrt af Bergi Þór Ingólfssyni sem einnig leikur í sýningunni.  Tónlist semur Garðar Borgþórsson.

Einar er alltaf einn. Líka á jólunum. En Einari leiðist aldrei. Hann finnur alltaf upp á einhverju til að gera einveruna áhugaverða. Kryddstaukar verða hljóðfæri og baunadósir dansa. Hann er hinsvegar mikill klaufabárður. Honum er til dæmis lífsins ómögulegt að elda jólahangikjötið án þess að umturna íbúðinni eða skreyta jólatréð án þess að vefja ljósaseríunni utan um sjálfan sig og festa sig við tréð með hangikjötið fast í hárinu. En þótt enginn pakki sé undir trénu deyr Einar ekki ráðalaus.

Bergur Þór Ingólfsson hefur sett upp vinsælar og margverðlaunaðar barna- og fjölskyldusýningar eins og Horn á höfði, Galdrakarlinn í Oz, Mary Poppins, Billy Elliot og Hamlet litla. Í tuttugu ár hefur hann verið á bakvið nefið á trúðnum Úlfari en hér stekkur hann fram með nýja persónu, klaufabárðinn Einar. Bráðfyndin barnasýning án orða á jólaföstunni. 

 Aðstandendur Höfundur, leikstjóri og leikari: Bergur Þór Ingólfsson | Leikmynd og búningar: Móeiður Helgadóttir | Lýsing og tónlist: Garðar Borgþórsson