ImageÍ Þjóðleikhúsinu hófust æfingar nú í vikunni á leikritinu Átta konur eftir Robert Thomas. Leikstjóri er Edda Heiðrún Backman en verkið verður frumsýnt á Stóra sviðinu í lok mars.

Fögur eiginkona, tvær ungar og óstýrilátar dætur, aðþrengd mágkona, gráðug tengdamamma, dularfull ráðskona og kynþokkafull þjónustustúlka. Húsbóndinn sjálfur liggur sofandi í rúmi sínu uppi á lofti. Eða hvað? Þegar sjö villtar konur eru samankomnar og sú áttunda bætist í hópinn getur allt gerst! Glæpsamlegur gamanleikur með söngvum og dansi!

Þegar leikritið Átta konur eftir Robert Thomas (1927-1989) var frumflutt í París árið 1961 hlaut það leiklistarverðlaunin Prix du Quai des Orfèvres og var leikið við miklar vinsældir. Franski leikstjórinn François Ozon vann geysivinsæla kvikmyndagerð verksins árið 2002, þar sem margar af fremstu leikkonum Frakklands fóru á kostum. Meðal annarra frægra verka Roberts Thomas eru Piège pour un homme seul og La Perruche et le poulet, en hann var einkum þekktur fyrir það að tvinna saman með góðum árangri form sakamálaleikrita og léttra gamanleikja. Robert Thomas starfaði einnig sem leikari, kvikmyndaleikstjóri og leikhússtjóri.

Sævar Sigurgeirsson aðlagar verkið íslenskum aðstæðum og semur söngtexta. Sævar hefur samið fjölda leikverka fyrir áhugaleikhópa, en einnig verk fyrir Hafnarfjarðarleikhúsið, Ríkisútvarpið og Leikfélag Akureyrar. Ásamt þeim Ármanni Guðmundssyni og Þorgeiri Tryggvasyni samdi hann handrit barnasýningar Þjóðleikhússins, Klaufar og kóngsdætur, sem frumsýnt var á síðasta leikári.

Edda Heiðrún Backman hefur leikið fjölmörg hlutverk bæði á sviði og í kvikmyndum frá því hún lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands 1983. Hún hlaut verðlaun bæði sem besta leikkona í aðalhlutverki og besta leikkona í aukahlutverki þegar Gríman – Íslensku leiklistarverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn árið 2003. Fyrsta leikstjórnarverkefni Eddu Heiðrúnar við Þjóðleikhúsið var Mýrarljós en hún leikstýrði einnig Svikum hjá LA, LR og Sögn og Sölku Völku hjá Borgarleikhúsinu.

Leikendur í Átta konum eru Birna Hafstein, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Kristján Ingimarsson, Margrét Guðmundsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir.

Þýðing, aðlögun og söngtextar eru í höndum Sævars Sigurgeirssonar, tónlistarstjóri er Samúel J. Samúelsson, Kristján Ingimarsson sér um sviðshreyfingar, búningar eru í höndum Elínar Eddu Árnadóttur, um lýsingu sér Hörður Ágústsson, höfundur leikmyndar er Jón Axel Björnsson, aðstoðarmaður leikstjóra er Jóhanna Jónas og leikstjóri er sem fyrr segir Edda Heiðrún Backman.