Leikdeild Eflingar frumsýnir gamanleikritið Í gegnum tíðina 1. mars næstkomandi. Í verkinu er sögð er saga íslenskrar bændafjölskyldu og lenda fjölskyldumeðlimir í hinum ýmsu aðstæðum. Inn í sýninguna fléttast fjölmörg þekkt lög frá árunum 1950-1980.
Leikstjórn er að þessu sinni í höndum Hildar Kristínar Thorstensen en hún býr í Hörgárdal. Hún hefur víðtæka reynslu á listasviðinu og alþjóðlega en hún lærði m.a. í Finnlandi, Englandi og Frakklandi og hefur það dugað vel til að temja hinn þingeyska lýð!
Tónlistarstjóri er Pétur Ingólfsson en hann hefur alloft verið með puttana við stjórnvölinn hjá leikdeildinni með tónlistina. Honum til aðstoðar er Marika Alavere.
Höfundur verksins er Hörður Þór Benónýsson en hann er jafnframt einn leikenda. Þetta er í annað skiptið sem leikdeildin setur verkið upp en það var fyrst sett upp árið 2012. Verkið var einmitt samið fyrir leikdeildina á sínum tíma og með það í huga að fjölbreyttur hópur ungra og eldri leikenda kæmu saman á sviði. Leikdeildin nýtur góðs af nálægð við Framhaldsskólann á Laugum en fjölmargir hæfileikaríkir nemendur hafa tekið þátt í verkum leikdeildarinnar.
Sýnt er á Breiðumýri. Miðapantanir og aðrar upplýsingar eru í síma 618-0847 og umfefling@gmail.com.