Föstudaginn 14. desember kl. 20 frumsýnir Ragnheiður Harpa Leifsdóttir leikverkið Hyldýpi  í Gamla bíói, Ingólfstræti 2a. Hyldýpi er leikverk sem fjallar um myrkrið, geimryk, ókönnuð djúp og kafbáta. Verkið er dagskrá um dýpsta dýpi sjávar og endaleysu himingeimsins, sorgina og sköpunarkraftinn. Sjónrænt ljóð hins óvænta og undarlega. Flytjandi, leikstjóri og höfundur er Ragnheiður Harpa Leifsdóttir. Verkið hefur ferðast á leiklistarhátíðir til Danmerku og Finnlands.

Sýningar verða:
Föstudaginn 14. desember
Laugardaginn 15. desember

Mánudaginn 17. desember
Þriðjudaginn 18. desember

Ragnheiður Harpa útskrifaðist úr Listaháskólanum 2011. Hún heillast af því sem hún skilur ekki til fullnustu, og sér dulúð í spurningarmerkjunum. Ragnheiður beitir vísindalegum vinnubrögðum í leit sinni að skilja hið óáþreifanlega, kafar ofan í tilfinningu til að skynja ástand, og leitar að því að skapa augnablik og upplifun. Ragnheiður Harpa nálgast stór viðfangsefni með póetískri greiningu. Hún hefur unnið innsetningar, performansa, leikhús, dagskrár og vidjóverk sjálf eða í samstarfi við listamenn, tónlistarmenn og leikhús víða um heim í sköpun verk sinna.

Verkið er tileinkað Oliver Lucas Horton

Tónlistarflytjendur eru Þórður Hermannson & Helene Inga Stankiewicz. Hljóðheim verksins gerði Albert Finnbogason og dramaturgar eru Leifur Þór Þorvaldsson & Bjarni Jónsson.

Sýningar hefjast kl. 20. Takmarkað sætaframboð!
Miðasala: midi.is