Föstudaginn 18. október kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið Hús Bernhörðu Alba. Hús Bernhörðu Alba er eitt þekktasta verk Federico García Lorca. Það er samið skömmu fyrir borgarastyrjöldina á Spáni og lýsir átökum valds og frelsisþrár, menningar og náttúru, siðsemi og kynhvatar. Valið stendur um frelsið eða dauðann. Kristín Jóhannesdóttir stýrir hér frábærum hópi listamanna í uppsetningu sem er samtal nútímans við sögusvið Lorca. Jón Hallur Stefánsson þýðir verkið.

Brynja Björnsdóttir hannar leikmynd og Þórunn María Jónsdóttir búninga. Hildur Ingveldardóttir semur tónlistina fyrir verkið sem flutt er af kvennakórnum Vox feminae undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Alls koma um 75 konur uppsetningu verksins (leikkonur, söngkonur, listrænir stjórnendur), þar af verða 35 á sviðinu hverja sýningu. Verkið verður sýnt í Gamla bíói – svo hinar vinsælu sýningar Mary Poppins og Mýs og Menn geti haldið áfram á Stóra sviði Borgarleikhússins. Hið sögufræga hús lifnar því við á ný með mörgnuðu verki Lorca.

Ekkjan Bernharða Alba fyrirskipar átta ára sorg vegna fráfalls eiginmanns síns og föður dætranna fimm. Hún heldur þeim ásamt aldraðri móður og þjónustustúlkum föngnum í húsi sínu án samskipta við umheiminn. Hún er heimilisharðstjóri. En þrátt fyrir að ytri aðstæður séu óbærilegar, þá er ekki hægt að bæla tilfinningarnar sem krauma undir niðri. Dæturnar eru allar við það að springa af þrá eftir frelsi, ást og betra lífi. Þegar svo tvær þeirra verða ástfangnar af sama manninum bresta allar hömlur og tilfinningarnar sjóða upp úr með ófyrirséðum afleiðingum.

Federico García Lorca (1898–1936) er þekktasta og mikilvægasta ljóð- og leikskáld Spánverja á tuttugustu öld. Kvenlýsingar Lorca eru engu líkar. Fáir kunnu betur en hann að lýsa tilfinningum kúgaðs fólks. Meðal verka hans eru Blóðbrullaup og Yerma en líklega er kvennaharmleikurinn Hús Bernörðu Alba, merkasta verk hans og loka verkið í þríleik um misbeitingu valds, kúgun og kúgara. Lorca var myrtur af fylgismönnum Francos 19. ágúst 1936. „Hann olli meira tjóni með pennanum en aðrir með skotvopnum,“ lét einn morðingjanna hafa eftir sér eftir illvirkið. Kristín Jóhannesdóttir stýrir hér frábærum hópi listamanna í uppsetningu sem er samtal nútímans við sögusvið Lorca. Síðustu leiksýningar Kristínar í Borgarleikhúsinu voru Beðið eftir Godot og Rautt sem báðar hlutu verðskuldaða athygli og lof.

Leikarar í sýningunni eru Charlotte Bøving, Esther Thalía Casey, Hanna María Karlsdóttir, Harpa Arnardóttir, Hildur Berglind Arndal, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson o.fl.