Kreppusöngleikur leikfélagsins Hugleiks, Stund milli stríða, var á vordögum valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins af dómnefnd Þjóðleikhússins og verður sýndur á stóra sviði leikhússins laugardagskvöldið 7. júní nk. Þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem Þjóðleikhúsið velur sýningu úr áhugaleikhúsinu og býður henni til sín.

Í umsögn dómnefndar segir m.a.: „Sögusviðið og umfjöllunarefnið er áhugavert, við hverfum aftur til kreppunnar milli stríða, með það í huga hvernig sá tími kallast á við okkar tíma. En hér eru húmorinn og ástin aldrei langt undan, né heldur tónlistin, og leikritið er bráðskemmtilegt. Fjöldi leikara og tónlistarmanna stendur að sýningunni, og flutningurinn er í senn kraftmikill, fjörugur og agaður. Umgerð sýningarinnar er einnig afar vel heppnuð, bæði leikmynd og búningar.“

Stund milli stríða er 30 ára afmælissýning Hugleiks og er eins og tíðkast þar frumsmíð félagsmanns. Höfundur er Þórunn Guðmundsdóttir. Þórunn hóf leikritunarferil sinn með stæl þegar söngleikurinn Kolrassa sló eftirminnilega í gegn hjá Hugleik árið 2002. Þórunn samdi bæði leik- og söngtexta og tónlistina að auki, enda kona ekki einhöm.

Leikstjóri er Jón St. Kristjánsson, en hann sviðsetti einmitt hina rómuðu Kolrössu á sínum tíma.

Stund milli stríða var frumsýnt í Tjarnarbíói 5. apríl og var sýnt þar um mánaðarskeið við frábæra aðsókn og lof gagnrýnenda. Nú gefst þeim sem misstu af síðasta tækifærið, og það á stóra sviði Þjóðleikhússins.

Hér er hægt að kaupa miða: http://midi.is/leikhus/2/1045