Leikfélagið Hugleikur frumsýnir leikritið Húsfélagið laugardaginn 15. apríl næstkomandi. Verkið kemur sjóðheitt úr hinni afkastamiklu höfundasmiðju félagsins.
Áratugum saman hafa húsfélög stigaganga A og B í Fögruhlíð 84 unnið hlið við hlið í sátt og samlyndi en aðskilin þó. Nú er kominn tími til að sameina þau í eitt og þá er friðurinn úti. Erjur, forboðnar ástir, gönguhópar, silfurskottur, brask, slúður og, já, Brennu-Njálssaga, ásamt öllum þeim vandamálum sem við mætum í samneyti við nágranna fléttast hér saman í sprenghlægilega satíru sem enginn má missa af. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir verkinu en hann á farsælan feril að baki og hefur meðal annars leikstýrt Ástrópíu, Ömmu Hófí og Áramótaskaupinu. Hátt í 30 manns taka þátt í leiksýningunni, þar af 11 leikarar.

Leiksýningin er sett upp í Leikhúsinu, húsnæði Leikfélags Kópavogs í Funalind 2, 201 Kópavogi.
Facebook viðburður og miðasala hér og Facebooksíða félagsins er hér.

Aðstandendur sýningarinnar:
Leikstjóri:
Gunnar Björn Guðmundsson
Höfundar:
Ásta Gísladóttir
Elín Jónína Bergljótardóttir
Elísabet Katrín Friðriksdóttir
Eyjólfur Kristjánsson
Loftur S. Loftsson
Sigríður Bára Steinþórsdóttir
Þórarinn Stefánsson

Tónlist:
Loftur S. Loftsson
Söngtextar:
Loftur S. Loftsson
Sævar Sigurgeirsson
Elísabet Katrín Friðriksdóttir