Hugleikur frumsýndi nýtt íslenskt leikrit eftir Árna Hjartarson sem nefnist Einkamál.is föstudaginn 15. apríl í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Leikstjórar eru Hulda B. Hákonardóttir og Þorgeir Tryggvason. Ólíkt mörgum Hugleikshöfundum sækir Árni Hjartarson sér jafnan efnivið í samtímamál, jafnvel þjóðfélagsleg álitamál, og á það stundum til að vera forspár. Af því tilefni er rétt að taka fram að leikritið var skrifað áður en umræðan um staðgöngumæðrun fór af stað.

Einkamál.is er dramatískur fjölskyldugamanleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum vanda. Hvað gerir barnelskur karl þegar hann kemst að því að einkasonur hans og tengdadóttir hafa ákveðið að eignast ekki börn? Hann tekur málið auðvitað í sínar hendur. En þó hann sé reyndar góður í stærðfræði þá reynist þetta vera dæmi sem hann nær ekki að reikna til enda.

Níu valinkunnir Hugleikarar fara með hlutverk í uppfærslunni. Þess má geta að síðasta leiksýningin sem þau Hulda og Þorgeir leikstýrðu í sameiningu, Rokk, var valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin leikárið 2009-2010 af dómnefnd Þjóðleikhússins og sýnd í Kassanum í tvígang fyrir fullu húsi.

Næstu sýningar eru sem hér segir:
3. sýning þriðjudaginn 19. apríl kl.20.00
4. sýning þriðjudaginn 26. apríl kl.20.00
5. sýning sunnudaginn 1. maí kl.20.00
6. sýning þriðjudaginn 3. maí kl.20.00
7. sýning föstudaginn 6. maí kl.20.00 (lokasýning)

Almennt miðaverð eru 1.500 krónur en 1.200 krónur fyrir nemendur, öryrkja og eldri borgara. Allar nánari upplýsingar um uppsetninguna og leikfélagið má nálgast á vefnum www.hugleikur.is.

{mos_fb_discuss:2}