Miðvikudaginn 12. apríl frumsýnir Hugleikur leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Möguleikhúsinu. Leikstjóri er Þorgeir Tryggvason og hlutverkin eru höndum nokkurra af öflugustu leikkonum félagsins, þær Hulda B. Hákonardóttir, Júlía Hannam, Elísabet Indra Ragnarsdóttir og Jónína Björgvinsdóttir. Systur verða sýndar í Möguleikhúsinu við Hlemm. „Við þurftum engin öryggisbelti – það kom aldrei neitt fyrir"
Þrjár systur missa móður sína á unga aldri. Faðir þeirra lætur þær að mestu afskiptalausar og uppeldisskyldurnar falla þeirri elstu í skaut. Mörgum árum síðar liggur faðirinn fyrir dauðanum og systurnar snúa aftur á æskuheimili sitt til að vaka yfir honum og ganga frá dótinu sem hann lætur eftir sig og þær yfirgáfu þegar þær fluttu hver í sína áttina. Við þá tiltekt verður óhjákvæmilega hróflað við beinagrindum í ýmsum skúmaskotum og gömul og ný ágreiningsefni verða viðruð. Kannski tekst að pakka öllu saman áður en morgun rennur, kannski verður ekkert eins og áður.
Systur er nýtt leikrit eftir Þórunni Guðmundsdóttur sem hefur skrifað nokkur af eftirtektarverðustu verkum Hugleiks undanfarin ár, svo sem Kleinur og söngleikinn Kolrössu sem er eitt aðsóknarmesta verk Hugleiks frá upphafi. Í systrum er blandað saman hrollvekjandi dramatík og ærslafullu gríni á ögrandi hátt eins og höfundinum – og Hugleik – er von og vísa.
Leikstjóri er Þorgeir Tryggvason og hlutverkin eru höndum nokkurra af öflugustu leikkonum félagsins, þær Hulda B. Hákonardóttir, Júlía Hannam, Elísabet Indra Ragnarsdóttir og Jónína Björgvinsdóttir. Systur verða sýndar í Möguleikhúsinu við Hlemm. Frumsýningin verður 12. apríl en aðeins eru fyrirhugaðar sex sýningar á verkinu.
Miðasala er í síma 551 2525 og á midasala@hugleikur.is. Almennt miðaverð er 1.500 kr.