Hugleikur frumsýnir Ó, þú aftur eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttir og Unni Guttormsdóttur í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins föstudaginn 15. maí kl. 20. Að hugleikskum sið leikur tónlist stórt hlutverk í sýningunni, en höfundar hennar eru Ljótu hálfvitarnir Þorgeir Tryggvason, Eggert Hilmarsson, Sævar Sigurgeirsson og Oddur Bjarni Þorkelsson.

Hér er á ferð sérstök afmælissýning í tilefni af 25 ára starfsafmæli leikfélagsins. Hugleikur hefur getið sér orð fyrir glannalega meðferð á íslenskum menningararfi, en að þessu sinni er það hans eigin fortíð sem fær hina hugleiksku meðferð, því frumgerð leikritsins var frumsýnd fyrir rúmum tuttugu árum. Þrátt fyrir aldurinn kallast verkið ótrúlega skemmtilega á við nútímann.

Um er að ræða klassíska ástarsögu sem byggir á persónum og stefjum úr „Pilti og stúlku“ eftir Jón Thoroddsen. Ungu elskendurnir Sigríður og Indriði verða ástfangin í sveitinni og einsetja sér að hittast í borginni að lokinni sláturtíð. Það gengur hins vegar ekki áreynslulaust fyrir sig, því þegar til borgarinnar er komið er svo ótal margt sem glepur, s.s. fjöldamótmæli, vængstífðir hrafnar, framandi skemmtistaðir, kynleg grös og alls kyns ólifnaður. Auk þess hefur önnur sveitastúlka, Gróa, augastað á Indriða og gerir allt til þess að koma í veg fyrir að ástfangna parið nái saman. Í örvæntingu sinni heldur Sigríður til Danmerkur til að hjúkra gömlum íslenskum presti meðan Indriði fer á sjóinn þess fullviss að hann finni aldrei stúlkuna sína aftur. En ævintýrin gerast enn.

Sérstök athygli er vakin á því að sýnt verður þétt og í stuttan tíma, en síðasta sýning á áætluð 29. maí. Almennt miðaverð er 1.500 kr. en 1.200 kr. fyrir námsmenn, eldri borgara, öryrkja og atvinnulausa. Miðasalan er í höndum Þjóðleikhússins á www.leikhusid.is og í síma: 551-1200. Sýningarplan má nálgast á vef Þjóðleikhússins sem og www.hugleikur.is.

{mos_fb_discuss:2}