Leikfélag Sauðárkróks setur nú upp verkið Litlu hryllingsbúðina í leikstjórn Valgeirs Skagfjörð, en 13 manns fara með hlutverk í sýningunni. Litla hryllingsbúðin eftir Howard Ashman með tónlist eftir Alan Menken er verk sem flestir ættu að þekkja. Gísli Rúnar Jónsson þýddi leiktextannn en söngtextar eru í þýðingu Magnúsar Þór Jónssonar (Megasar).
Söngleikurinn fjallar um hann Baldur sem vinnur í lítilli blómabúð í fátæklegri götu, Skítþró í skuggahverfi borgarinnar en hann lifir frekar óspennandi lífi. Rekstur blómabúðarinnar hjá Músnik gengur erfiðlega en í henni vinna Músnik sjálfur, Baldur og Auður. Baldur er ástfanginn af Auði en hún á kærasta, leðurklæddan og ofbeldisfullan tannlækni, sem ferðast um á mótorhjóli og beitir Auði ofbeldi. Dag einn kaupir Baldur dularfulla plöntu, sem hann nefnir Auði II og eftir því sem plantan vex og dafnar aukast viðskiptin stöðugt meira í blómabúðinni og Baldur verður sífellt vinsælli.

Ingi Sigþór Gunnarsson fer með hlutverk Baldurs og Emelíana Lillý Guðbrandsdóttir leikur Auði en Emelíana Lillý sigraði nýverið Söngkeppni framhaldsskólanna með laginu Aldrei sem Ingi samdi texta við. Guðbrandur J. Guðbrandsson leikur Markús Músnik eiganda Blómabúðarinnar en hann er búinn að taka þátt í rúmlega 40 uppfærslum með leikfélaginu nær samfleytt.

Leikfélagið frumsýnir í byrjun Sæluvikunnar en Sæluvika Skagfirðinga er lista- og menningarhátíð sem haldin er árlega í Skagafirði. Metnaðarfull dagskrá Sæluviku stendur yfir í viku og hefst hún formlega síðasta sunnudag í apríl ár hvert. Miðasala er á Tix.is.

Leikfélag Sauðárkróks er eitt elsta áhugaleikfélag landsins og hefur í mörg ár sýnt leiksýningar við góðan orðstír. Það var stofnað 13. apríl 1888 en stofnendur voru 16 talsins
og markmið félagsins voru gagn og skemmtun. Félagið stóð fyrir leiksýningum um árabil og þá helst í Sýslufundavikunni. Það lognaðist þó smám saman útaf. Samt var alltaf leikið á Sauðárkróki, Stúkan, Kvenfélagið og fleiri sáu til þess. 9. janúar 1941 var Leikfélag Sauðárkróks stofnað á ný í Bifröst. Síðustu ár hefur leikfélagið sett að jafnaði upp tvær sýningar á ári, Sæluvikusýningu á vorin og barnasýningu á haustin.