Hótel Volkswagen, nýju íslenskt verk eftir Jón Gnarr í leikstjórn Benedikts Erlingssonar verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhúsisns nk laugardag 24. mars kl 20. Jón Gnarr skrifaði verkið í embætti sínu sem leikskáld Borgarleikhússins á síðasta leikári áður en hann lét af því embætti til að taka við embætti borgarstjóra Reykjavíkur. Hótel Volkswagen er leikrit um brjóstumkennanlega gesti á hóteli þar sem ekkert er eins og af er látið og allt getur gerst.

Leikstjóri er Benedikt Erlingsson en þeir Jón hafa áður unnið saman í þáttunum Fóstbræðrum sem eru fyrir löngu orðnir sígildir. Sex leikarar og tveir þýskir fjárhundar eru í verkinu. Stóra salnum í Borgarleikhúsinu hefur verið breytt fyrir sýninguna, því sviðið er byggt út í salinn og öðrum áhorfendasvæðum bætt við á sviðinu, þannig er leikið með áhorfendur á tvo vegu. Með þessu skapast meiri nálægð við leikara og dýr en vaninn er.

Pálmi og Siggi litli eru á ferðalagi. Bíllinn bilar, en til allrar hamingju er Hótel Volkswagen í næsta nágrenni og þar er ekki einasta gistiaðstaða heldur er Svenni móttökustjóri líka bifvélavirki. Svenni er bjartsýnn tómhyggjumaður og hann lofar þeim að gera við bílinn. Á meðan feðgarnir bíða eftir að gert verði við bílinn þurfa þeir að gista á hótelinu og smám saman kynnast þeir gestum hótelsins. Paul Jenkins er kona og breskur séntilmaður. Hún er gift Adrian Higgins. Þeir Paul og Adrian geta ekki eignast börn en eru alltaf að reyna. Svo er það Ludwig Rosenkranz, kumpánlegur nasisti með fortíðarþrá. En hann, eins og flestir gesta hótelsins, uppgötva að það er hægara sagt en gert að yfirgefa Hótel Volkswagen. Við fylgjumst með hinum brjóstumkennanlegu gestum á hóteli þar sem allt getur gerst og allir eiga sér vafasama fortíð.

Jón Gnarr er afkastamikill höfundur og hefur samið mikið efni fyrir útvarp og sjónvarp ásamt því að skrifa kvikmyndahandrit. Hann er einn af höfundum Vakta-seríanna og kvikmyndarinnar Bjarnfreðarson þar sem hann sló rækilega í gegn og hlaut Edduverðlaunin 2010 fyrir leik sinn í myndinni. Leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur réði hann sem hússkáld Borgarleikhússins árið 2010 og er Hótel Volkswagen afrakstur af starfi hans þar. Benedikt Erlingsson (1969) leikstýrir verkinu en þeir Jón hafa áður unnið saman í þáttum Fóstbræðra sem eru fyrir löngu orðnir sígildir. Benedikt er einn af okkar þekktustu leikhúsmönnum og leikstýrði m.a. Jesú litla sem hlaut Grímuna árið 2010 sem sýning ársins.

Aðstoðarleikstjórn: Haraldur Ari Stefánsson
Leikmynd: Halla Gunnarsdóttir
Búningar: Eva Vala Guðjónsdóttir
Lýsing: Þórður Orri Pétursson
ónlist: Davíð Þór Jónsson
Leikarar: Þorsteinn Gunnarsson, Hallgrímur Ólafsson, Halldór Gylfason, Dóra Jóhannsdóttir, Jörundur Ragnarsson, Bergur Þór Ingólfsson

{mos_fb_discuss:2}